Leita í fréttum mbl.is

Vitiði.....

.......mér finnst það eiginlega snilldarlegt hjá Steingrími J. að láta alla halda að hann sé að selja sálu sína og svíkja kjósendur með því að kyngja því að við förum í aðildarviðræður um inngöngu í ESB.

Hann veit sem er að við Íslendingar munum að líkindum ekki segja já þegar þar að kemur. Til þess erum við, eins og bóndinn í Moggaviðtalinu í gær sagði svo réttilega, of miklir einyrkjar í eðlinu.

Ég komst einmitt að því þegar ég á dögunum gerði athugun á menningu garðyrkjubænda í Hveragerði fyrr og nú að sá hópur var aldrei stétt heldur fyrst og fremst einyrkjar. Þannig er það einhvern vegin með okkur Íslendinga líka.

Það er eitthvað í því sem ekki er til betra orð yfir en þjóðarsál, sem gerir okkur að einyrkjum eða einförum jafnvel. Alveg eins og það er eitthvað í þjóðarsál Norðmanna sem gerir þá að hallærisplebbum (er að æfa mig í að gera ekki gys að Norðmönnum - en ég er jú mannleg.....).

Þetta veit Steingrímur J. Hann treystir á þjóðina þegar á hólminn kemur.

Hins vegar kostar þetta Evrópu-kjaftæðis-bull einhvern helvítis helling sem ég sé ekki alveg að gott sé að réttlæta í augnablikinu. Þar á móti kemur reyndar að margur maðurinn mun hafa atvinnu af þessu brölti, sér í lagi í sérfræðingastétt, sem er gott í atvinnuleysinu.

Það breytir ekki því að við látum ekki teyma okkur inn í ESB að óbreyttu.

Noðurlanda-samtarfs-brandarinn er svo alveg heill kapituli útaf fyrir sig. Fyrir rúmum 20 árum stóð ég með alla mína 154 sentimetra uppi í hárinu á miðaldra bjúrókrötum í norskri embættismannastétt til að fá skítavinnu í litlu skítapleisi rétt utan við Stavanger. Þar mætti ég ítrekað fullyrðingum um að ég væri útlendingur og þyrfti atvinnuleyfi.

Nei, gargaði ég. Ég er Íslendingur og tilheyri Norðurlöndunum. Ég varð að hringja í sendiráðið, fékk að sjálfsögðu vinnuna og gerði mér ferð á kontórinn til að núa því þeim um nasir sem áttu það skilið.

Í vinnunni hitti ég svo mann og annan, þar á meðal liðlega fertugan Dana sem aldrei hafði heyrt að Íslendingar hefðu haft danskan kóng. Honum fannst það fyndið - þó ekki eins fyndið og að heyra mig segja eitt og annað með öllum dönsku hljóðunum á nokkurn vegin réttum stöðum (Húsið var á tveimur hæðum og hann lét mig segja ´ned´ mörgum sinnum á dag). Hvar lærðirðu að tala dönsku? Spurði hann hlægjandi - Nú í skóla á Íslandi, danskur kóngur mannstu, svaraði ég - ekki hlægjandi.

Enn annar var norskur, hét (og heitir sjálfsagt enn) Haakon, og spurði mig hvort við í minni fjölskyldu værum fátæk, hvort ég hefði þurft að búa í sjóhúsi !!!!!!!!!! 

Nú öllum þessum árum síðar þekki ég konu sem stendur í sama stappinu í Noregi. Hún þarf að vinna vinnuna fyrir fávísa kommúnufulltrúa í norska konungdæminu - og að sjálfsögðu hefur hún og veit betur!

VIÐ HÖFUM ALDREI VERIÐ HLUTI AF NORÐURLÖNDUNUM! þar höfum við aldrei verið og verðum ekki á minni lífstíð viðurkennd sem jafningjar.

Ég held við munum standa dálítið ein enn sem komið er. Hins vegar held ég líka að við getum ekki haldið áfram að keyra samfélagið og reka eins og milljónaþjóðir í kringum okkur gera. Það eru aðeins um 160 þúsund manns á vinnumarkaði sem reka kassann hér heima. 

En ESB er ekki svarið - því miður!

xxx

Fía litla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Soffía Valdimarsdóttir
Soffía Valdimarsdóttir
Bara ég sjálf hvort sem ykkur líkar það betur eða verr!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 56247

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband