9.4.2009 | 17:22
Hvar er varaformaðurinn?
Það heyrist ekki múkk í Þorgerði Katrínu í tengslum við þennan subbuskap.
Einhver ykkar muna kannski að ég fullyrti daginn áður en hún hlaut rúmlega 80% kosningu í varaformanninn að hún væri á leiðinni út í kuldann.
Sumum fannst sú fullyrðing fáránleg í ljósi fylgis hennar innan flokksins í þetta mikla embætti.
Það hvarflaði aldrei að mér að hún fengi ekki gott gengi. Hins vegar er hún á leiðinni út frekar fyrr en seinna.
Ég er viss um það. Hvort það verður fljótlega veit ég ekki en mitt pólitíka nef þefar nú uppi ástæðuna fyrir því að ekkert heyrist í konunni núna. Hún mun á endanum snúa af þessari braut - tja nema Flokkurinn umpólist!
Hvort hún fer alfarin burt af vettvangi stjórnmálanna þori ég ekki að fullyrða en mér finnst það þó mjög trúlegt.
En hún er á leið út úr klíkunni - það er augljóst.
Þorgerði Katrínu er líkast til misboðið, jafnvel allri lokið yfir núverandi stöðu.
Ástæðan fyrir því að hún hlaut þessa góðu kosningu um daginn er einföld.
Flokkurinn ætlar stuttbuxna-erfingjanum úr Garðabænum að taka við innviðum Flokksins.
En hann er ungur að árum og slíkt virkar ekki sérlega traustvekjandi í Mafíu-samfélögum.
Þess vegan er almenn samstaða um að setja móðurímynd þétt upp að hliðinni á honum svona til halds og trausts.
Málið er að hinn almenni Sjálfstæðismaður er svo heimskur að hann gleypir bara táknin og uppstillingarnar í strúktúr Flokksins en skilur ekki og lætur sig engu varða hvað er á seyði.
Þorgerður Katrín er hins vegar enginn vitleysingur - þess vegna þvær hún hendur sínar af þessum sóðaskap og lætur ekki sjá sig.
xxx
Fía litla
Guðlaugur Þór: Ég óskaði ekki eftir styrk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Bloggvinir
- 810
- leifurl
- latur
- hjolaferd
- birgitta
- katrinsnaeholm
- vefritid
- ragnarfreyr
- dofri
- halkatla
- svavaralfred
- kolgrima
- svala-svala
- helgafell
- bjarnihardar
- brell
- salkaforlag
- brjann
- gattin
- brandarar
- ebbaloa
- eddabjo
- kokkurinn
- gudmundurhelgi
- hallarut
- snjolfur
- disdis
- holmdish
- haddih
- kreppan
- jenfo
- larahanna
- lillagud
- loaloa
- rutlaskutla
- klarak
- vilborg-e
Tenglar
Þjóðfræði
- Oral Tradition Allt um munnlega hefð
- Snopes Sögusagnir
- Árnastofnun Íslensk fræði
- Þjóðbrók Félag þjóðfræðinema
- Félag þjóðfræðinga
- Sagnanet Um íslenskar fornbókmenntir
- Sagnagrunnur Íslenskar sagnir
- Orðanet Samheitaskrá Árnastofnunar
- Orðabók Háskólans
- Spurningalistar Þjóðminjasafnsins
- Þjóðminjasafnið
Íslensk prjónablogg
prjónakonur
- sheep in the city
- sittin´here knittin
- string theory
- nake-id knits
- Harpan
- 2 pinde
- Norræn prjónablogg
- purlbee
- erleperle
- Hey Lucy
- Prjónakona
- Hun som köber for meget garn
- innblástur
- Nevernotknitting
- Eva Anette
- heilög belja
- Hot needles
- Splityarn
Gagn og gaman
- pink by post
- Rowan
- Knotions
- Modern country
- Syko
- Seiðkona.is
- Náttúra.is
- SarahLondon
- Soliga
- Aldís bæjarstjóri
- Raverly
- Handprjónasambandið
Hugleiðsla
- Zen Hugleiðsla
- Zen leiðbeiningar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég verð nú að segja að ég vona að vinstri hreyfingin í þessu landi sé ekki öll eins ógeðfellt þenkjandi og talandi eins og þú.....? Ættir að vera viss um staðreyndir áður en þú dælir svona út úr þér... Hefur þér nokkuð dottið í hug að Þorgerður gæti verið frá vegna veikrar dóttur? Af hverju dettur ykkur bara það verssta í hug og atið það drullu og skít áður en þið svo mikið sem reynið að hrekja það.
En ég geri ekki ráð fyrir því að svona skítatal verði mörgum til framdráttar og allra síst þér ef þú þá ert í framboði.
Helga , 9.4.2009 kl. 17:30
Ég er nú eiginlega að hrósa hér og mæra Þorgerði Katrínu ágæta Helga - spurning um lesskilning kannski ???
Soffía Valdimarsdóttir, 9.4.2009 kl. 17:34
Æi, greyið ÞKG, hún hefur það örugglega mjög slæmt, skyldi vera að hún tengist einhvern veginn inn í bankahneykslið?
Rut Sumarliðadóttir, 10.4.2009 kl. 10:07
Hún tjáir sig um slæmt gengi Flokksins í skoðanakönnunum í dag og það gerir hún með afar kokhraustum og hrokafullum hætti. Dálítið ólíkt henni finnst mér. Undanfarið er hún aggresíf og í mikilli vörn. Það er eitthvað sem ég kannast vel við hjá sjálfri mér á stundum. Það er þegar ég veit að ég er ekki á góðum stað.
En ekki orð um styrkina stóru - hún er í pólitískri klemmu. Hennar sjálfrar vegna vona ég að hun sé ekki viðriðin neinn glæp.
Ég finn til með henni í þessu kallaveldi sem Flokkurinn er.
Soffía Valdimarsdóttir, 10.4.2009 kl. 10:21
Kannski er hún að dunda sér við að rissa upp nýtt vörumerki Sjálfstæðisflokksins. Skildi hún ekki fá nettann aulahroll þegar hún les það sem eftir henni er haft í fjölmiðlum?
Kveðja Viðar.
Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 11:11
Nei sæll frændi - þú hér?
Ég er svona að leiða líkum að því að hún sé föst í eigin neti konan sú. Er þess vegna ekki frá því að hún fái aulahroll með eftirsjá við að lesa eigin ummæli þegar upp verður staðið.
Soffía Valdimarsdóttir, 10.4.2009 kl. 11:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.