Leita í fréttum mbl.is

Hérna....eeh..sko.....

.......ég þori varla að segja þetta.

Er ég ein um að vera að drepast úr aulahrolli yfir þessum handboltalandsliðsmóttökum?
Var í mat með familíunni hjá mömmu eins og alltaf á miðvikudögum og allir með diskana á hnjánum fyrir framan imbakassann. Ég hristi af mér sjálfið eitt augnablik og hugsaði með mér að ég yrði að horfa líka, taka þátt og vera almennileg.

Ólafur Ragnar í banastuði í viðtali og svo segir Jóhanna: Við skulum aðeins skoða myndir.

SMÁBARNAMYNDIR af landsliðinu!!!!!!!!

Nei andskotinn hafi það má ég þá heldur setjast við skólabækurnar en þetta helvíti. Þetta er einhver taktík fengin að láni úr selebrití fréttamennsku Hollywood pressunar sem mig varðar fjandakornið ekkert um. Meira að segja mágur minn sjáfur íþróttakennarinn gat ekki hugsað sér að horfa.

Ég entist rétt rúmlega mínútu
Sorrí þetta er bara aðeins of kjánalegt - svo er fólk að bauna á Dorrit fyrir óþarfa hrifnæmni !!!!!!!!!!!!!!!!!!
xxx

Fía litla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Frábær stund og ég er stollt eins og ætíð að vera íslendingur.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 27.8.2008 kl. 20:36

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Soffía og þú sem ert að læra þjóðfræði  hvað er þetta annað en púrasta ÞJÓÐFRÆÐI

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 27.8.2008 kl. 21:07

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Rétt hjá þér Hulda mín góð! Sennilega mætti rannsaka þennan fjanda með tækjum þjóðfræðinnar. Ég er bara svona viðkvæm sál eða eitthvað að þetta veldur mér hrolli og ógleði. Bíð bara eftir að gamlar kærustur tjái sig um typpastærð og alls kyns sérviskur landsliðsmeðlima í Séð og Heyrt!

Soffía Valdimarsdóttir, 27.8.2008 kl. 21:19

4 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það vantar í þig öll íþróttaþjóðfræðigenin

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 27.8.2008 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Soffía Valdimarsdóttir
Soffía Valdimarsdóttir
Bara ég sjálf hvort sem ykkur líkar það betur eða verr!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 56215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband