Leita í fréttum mbl.is

Skrítinn draumur

Mig dreymdi svo einkennilega í nótt.

Ég var á gangi og kom að langri brú yfir að því er mér fannst Ölfusá. Útundan mér sá ég tvo smástráka leika sér. Þegar ég var komin svo sem eins og miðja vegu á brúnni sá ég að leirljós hestur stekkur út í ánna. Þegar ég kíki ofan i vatnið sé ég strákana tvo. Áin var grunn og tær svo ég sá vel til þeirra. Þeir virtust vera að sökkva. Ég hljóp af stað en bölvaði því um leið að nú myndi sennilega rakna af prjónunum það sem ég var að prjóna á göngunni. Stakk mér út í og synti í átt til strákanna sem flutu til mín á móti straumnum. Þegar ég er rétt að ná til þeirra sé ég að annar hestur en sá ljósi er þarna líka. Þessi er dökkur og fylgir drengjunum eftir. Ég er komin alveg upp að strákunum og veit að mér muni takast að bjarga þeim þegar ég svo hrökk upp glaðvakandi.

Hver vill spreyta sig á þessum?
xxx
Fía litla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ekki spurning, þú ert hafmeyja í hjartanu og þráir heitast af öllu að komast í sund núna;)  Nei annars hef ég auðvitað ekki hugmynd og finnst þetta hálf krípí -þakka bara fyrir að vera búin að athuga með thailandsflugin og þau eru bæði lent heilu og höldnu í DK svo þetta er ekki fyrir einhverjum hörmungum með það.

Anna Sys (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 10:24

2 identicon

... já og í þínu fyrra lífi sem hafmeyja varstu örugglega sæhestahirðir

Anna aftur (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 10:34

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Ok er krakkinn sem sagt lentur í Köben?!

Það er nú gott að börnin mín skuli eiga þig að Anna mín eins óhæf móðir og ég er - var sko ekki farin að tékka neitt á þessu..........

En sennilega er þetta rétt hjá þér með hafmeyjuhugmyndina...............

Soffía Valdimarsdóttir, 27.10.2008 kl. 10:34

4 identicon

...það er bara lykilatriði að hafa jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi.....   ....Muhahahaha!

 ps. ég sé að Kolbrún er komin á feisbúkkið

Anna Erla (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 10:45

5 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Nákvæmlega og búin að senda mér áskorun um að koma líka - og Kristín og Sólhildur líka. Ég skráði mig áðan en hef ekki tíma til að setja þetta upp. Þú græjar þetta með mér litla sys........

Soffía Valdimarsdóttir, 27.10.2008 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Soffía Valdimarsdóttir
Soffía Valdimarsdóttir
Bara ég sjálf hvort sem ykkur líkar það betur eða verr!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 56217

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband