Leita í fréttum mbl.is

Ljóðrænir rukkarar í Grínville

Anna systir sendi mér þetta í gær:

Kæra sys!
langaði bara að senda þér einn af betri bröndurum bæjarstjórnarinnar hér í 810 Grínville. Þetta er auglýsing frá okkar háæruverðugu yfirvöldum sem birtist í Dagskránni um áramótin fyrir einverjum árum og ég hef ekki enn getað fengið af mér að henda af ísskápshurðinni minni.
kv. Anna Erla:

Kæri greiðandi fasteignagjalda!

Nú eru merk tímamót að renna upp. Þá er oft horft til baka um leið og skyggnst er til framtíðar. Látum ekki ógreidd fasteignagjöld verða til þess að spilla gleði okkar yfir því sem augun sjá.
Innheimtudeildin

Það er reyndar gaman að segja frá því að afi og amma í Hverahlíðinni höfðu það fyrir reglu alla tíð að gera allt upp fyrir áramót hversu tíkarlegt sem það var. Nýtt ár með hreint borð - tja ef maður gæti það nú!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég get nú ekki sagt að það myndi spilla fyrir mér hátíð ljóss og friðar þó ég skuldaði einhver fasteignagjöld til þessa batterís sem við kjósum að kalla bæjaryfirvöld.  efast allavega um að þetta lið missi svefn yfir því að það skuldi þegnunum sjálfsagða þjónustu í bæjarfélagi eins og aðstöðu fyrir börnin til að stunda sínar íþróttir á kristilegum tíma í eigin sveitarfélagi. 

djöfull er nú annars gott að vakna svona jákvæður og hress ;)

kv. Anna í aumingjaheiði

Anna Erla (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 08:12

2 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Já! Ég heyri að þú ert bara í stuði í flensunni! Þarftu ekki að hringja í einhver símafyrirtæki eða eitthvað? Um að gera að nota stemmninguna.

Soffía Valdimarsdóttir, 29.4.2008 kl. 08:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Soffía Valdimarsdóttir
Soffía Valdimarsdóttir
Bara ég sjálf hvort sem ykkur líkar það betur eða verr!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 56195

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband